Grafarþögn eftir Arnald Indriðason

Grafarþögn eftir Arnald Indriðason

Mannabein finnast í grunni nýbyggingar í útjaðri Reykjavíkur og líkur benda til að glæpur hafi verið framinn. Beinin virðast nokkurra áratuga gömul og sérfræðingar eru fengnir til að grafa þau upp en samtímis hefur lögreglan leit að fólki sem gæti vitað eitthvað um málið. Lögreglumennirnir Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg eiga erfitt verkefni fyrir höndum en smám saman skýrist myndin; fortíðin er grafin upp úr moldinni, upp úr gömlum pappírum, upp úr fylgsnum hugans – og brotin raðast saman í helkalda, óvænta harmsögu.

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information