Andlitslausa konan eftir Jónínu Leósdóttur

Andlitslausa konan eftir Jónínu Leósdóttur

Á gamlársdag er Eddu boðið í brúðkaup á Þingvöllum hjá fólki sem hún þekkir varla haus eða sporð á. Hún býður Finni nágranna sínum með sér og barnabarnið, Dagný Edda, myndar athöfnina ásamt vinkonu sinni. Þar með flækjast þau öll inn í rannsókn skelfilegs glæps sem framinn er fyrir utan litlu kirkjuna. Rannsóknin varpar óvænt kastljósi á veislu sem forsætisráðherra undirbýr í gamla Þingvallabænum og setur líka leyndardómsfull áramótaplön ungu stúlknanna í uppnám. Andlitslausa konan er fimmta bók Jónínu um Eddu á Birkimelnum, glímu hennar við flókin sakamál og samskiptin við fjölskylduna sem stundum eru síst einfaldari.

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information