Svik eftir Lilju Sigurðardóttur

Svik eftir Lilju Sigurðardóttur

Úrsúla er nýlega flutt til Íslands eftir áralöng störf á hættusvæðum heimsins. Rólegt hversdagslífið í Reykjavík hentar henni engan veginn, svo að hún grípur fegins hendi óvænt boð um að taka sæti í ríkisstjórn landsins: þar getur hún aftur látið til sín taka! En stjórnmálin eru refskák og fjölmiðlar vaka yfir hverju fótmáli nýja ráðherrans. Við bætist að gamall útigangsmaður eltir hana á röndum og virðist vilja vara hana við yfirvofandi hættu. Getur verið að hann búi yfir vitneskju sem ógnar einhverjum í innsta hring? Svik er hröð og hörkuspennandi saga um völd og valdaleysi, ofbeldi og þöggun; um að bregðast trausti og svíkja gefin loforð.

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information