Húsið eftir Stefán Mána

Húsið eftir Stefán Mána

Á Þorláksmessu 1979 kemur upp eldur í húsi á hæð innst í Kollafirði. Sjö ára gamall drengur kemst lífs af úr brunanum en foreldrar hans og tvö yngri systkini farast. Drengurinn er minnislaus en fær martraðir um eld, reyk og ógnvænlegan mann með hamar í hendi. Seint í nóvember 2007 er Hörður Grímsson kallaður að húsi í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Í kjallaranum liggur gamall maður í blóði sínu. Flest bendir til þess að um slys sé að ræða en lögreglumaðurinn er á öðru máli. Skömmu síðar flytur fjögurra manna fjölskylda inn í afskekkt hús í Kollafirði og draugar fortíðar vakna til lífsins …

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information