Hungur eftir Stefán Mána

Hungur eftir Stefán Mána

Það er síðsumar í Reykjavík þegar lögreglan fær tilkynningu um dularfullt mannshvarf. Ungur maður frá Vestfjörðum sem ætlaði að tjalda í borgarlandinu er horfinn sporlaust. Hörður Grímsson rannsakar málið. Athygli hans beinist helst að grænu svæðum borgarinnar, meðal annars Elliðaárdalnum. Skógurinn í dalnum teygir úr sér á milli kvísla árinnar og er stærri og dularfyllri en hann lítur út fyrir að vera í fyrstu. Nokkrum dögum síðar er tilkynnt um hrottalegt morð um hábjartan dag á heimili í nágrenni Elliðaárdals. Þar finnst húsmóðirin liggjandi í blóði sínu. Aðkoman er svo hroðaleg að hvorki Hörður né samstarfsfólk hans hefur séð annað eins. Til að bæta gráu ofan á svart óttast Hörður að málin tengist og að hryllingnum sé ekki lokið. Klukkan tifar og einhvers staðar í skuggum borgarinnar leynist sjúk sál sem er drifin áfram af óseðjandi hungri.

Points

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information