Stella Blómkvist slær ekki slöku við. Að þessu sinni tekst hún á við raðnauðgara í ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks, óvægna aðför að sómamanni úr flokki prúðupilta og garfar í máli konu sem var ranglega dæmd fyrir morðtilraun á þokkafullum einkaþjálfara. Síðan er það auðvitað þetta lík sem hún fann í Snorralaug með öxi í brjóstinu – sem hefur greinilega ekki legið þar síðan á Sturlungaöld. En erfiðasta málið bíður hennar þó heimafyrir.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation