
Vegurinn sem tekur við af brúnni á austurleið hefur frá upphafi heitið Flóavegur og nær frá Selfossi að Þjórsárbrú.Gamla brúin tekur nafn sitt af Ölfusi, byggðinni vestan árinnar. Eðlilegt væri að nýja brúin tæki nafn sitt af Flóanum, byggðinni fyrir austan ána.
Í Flóanum voru fimm hreppar og mynda nú þrír þeirra Flóahrepp, sem afmarkast af Árborg í vestri, Skeiðum og Þjórsá til austurs opg Ölfusá og Hvítá til norðurs. Þar er Flóaskóli og fjöldi örnefna, sem tengjast Flóanum og er Flóaáveitan sennilega sú kunnasta. Í daglegu tali er talað um Flóamenn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation